25.11.16 - 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Örvar Eggertsson úr Breiðabliki í Víking (Staðfest)

Örvar við undiskriftina.

Mynd: Víkingur R.

Örvar við undiskriftina.

Mynd: Víkingur R.
Framherjinn Örvar Eggertsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking Reykjavík en þetta staðfesti félagið í gær.
Örvar kemur frá Breiðabliki en hann var aðeins í Kópavoginum í um 20 daga þar sem hann fór þangað frá uppeldisfélagi sínu, FH, 5. nóvember síðastliðinn. Örvar hefur því skipt um félag í tvígang á innan við mánuði.
Hann skoraði 11 mörk í 17 leikjum fyrir 2. flokk FH í sumar og binda Víkingar miklar vonir við hann.
Örvar hefur verið viðloðandi yngri landsliðin og var hann m.a valinn í úrtakshóp U19 ára landsliðsins á dögunum.