25.11.16 - 09:01
Magnús Már Einarsson
Óttar Magnús til Molde (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur hefur selt framherjann unga Óttar Magnús Karlsson til Molde í Noregi en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Óttar átti gott tímabil fyrir Víking og var markahæsti leikmaður liðsins með 9 mörk í 22 leikjum í deild og bikar. Hann var jafnframt valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar af leikmönnum sjálfum.
Hinn 19 ára gamli Óttar fór frá Víkingi til Ajax í Hollandi sumarið 2013. Hann snéri aftur í Víking í sumar og sló í gegn í Pepsi-deildinni.
Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde, mætti meðal annars til Íslands til að skoða Óttar og nú hefur félagið keypt hann í sínar raðir.
„Víkingar eru þakklátir fyrir framlag Óttars síðastliðið sumar og óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi,\" segir í tilkynningu frá Víkingi.
„Óttar Magnús Karlsson er fimmti leikmaður Víkings sem fer í atvinnumennsku á síðastliðnum þremur árum.\"
Molde endaði í fimmta sæti í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.