25.11.17 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Juventus nýtir sér ákvæði og kaupir Costa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Juventus hefur ákveðið að nýta sér ákvæði í lánssamningi Douglas Costa og kaupa hann frá Bayern München. Kaupverðið er 46 milljónir evra (41 milljón punda).
Hinn 27 ára gamli Costa samdi við Bayern árið 2015 eftir að hafa leikið áður með Shakhtar Donetsk í Úkraínu. Hann hefur verið í láni hjá Juventus frá því í sumar.

Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, staðfesti það að Juventus hefði nýtt sér ákvæði í lánssamningnum sem gerir Ítalíumeisturunum kleift að kaupa Brasilíumanninn næsta sumar.
Costa hefur leikið 16 leiki fyrir Juventus á tímabilinu, skorað eitt mark og lagt upp fjögur.
Bayern hefur aldrei fengið eins hátt verð greitt fyrir einn leikmann og Costa. Árið 2014 borgaði Real Madrid 25 milljónir evra fyrir Toni Kroos, en það var áður metið.