25.11.17 - 11:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi skrifar undir nýjan samning (Staðfest)

Mynd: Barcelona FC

Mynd: Barcelona FC
Lionel Messi hefur loksins skrifað undir nýjan samning við Barcelona, það er klappað og klárt.
Messi samþykkti nýjan samning við Börsunga í sumar en það hefur dregist á langinn hjá honum að skrifa undir. Hann hefur ekkert viljað tjá sig um framtíð sína upp á síðkastið.
Í morgun var penninn loksins rifinn fram er Messi skrifaði undir samning við Barcelona til 2021. Riftunarverðið í samningi hans er núna 700 milljónir evra, en þegar samningurinn klárast mun hinn þrítugi Messi hafa varið 17 árum í aðalliði Börsunga.

Messi hefur bætt flest met Barcelona á tíma sínum hjá félaginu. Á heimasíðu Katalóníustórveldisins er honum lýst sem „besta fótboltamanni allra tíma.\" Hann hefur meðal annars orðið átta sinnum spænskur deildarmeistari og fjórum sinnum unnið Meistaradeildina.
Þá hefur hann unnið Gullknöttinn (e. Ballon d’Or) oftar en nokkur annar, eða fimm sinnum.
Messi hefur skorað 523 mörk í 602 leikjum fyrir Barcelona og er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Þá hefur hann unnið Gullknöttinn (e. Ballon d’Or) oftar en nokkur annar, eða fimm sinnum.
Messi hefur skorað 523 mörk í 602 leikjum fyrir Barcelona og er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.
[BREAKING NEWS] All the details about the new contract between Barça and Lionel #Messi https://t.co/P0Oxn4NjTQ #Messi2021 pic.twitter.com/IWgCTe7M34
— FC Barcelona (@FCBarcelona) November 25, 2017
Messi\'s contract to 2021 and his buy out clause... €700m https://t.co/NxJkPcEkx5
— Guillem Balague (@GuillemBalague) November 25, 2017