25.11.18 - 17:36
Arnar Helgi Magnússon
Leik River Plate og Boca Juniors frestað í annað sinn

Stuðningsmenn River í gær.

Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn River í gær.

Mynd: Getty Images
Frestuðum leik River Plate og Boca Juniors sem átti að fara fram núna klukkan átta að íslenskum tíma hefur verið frestað aftur af Suður-Ameríska knattspyrnusambandinu eftir að Boca sendi inn formlega beiðni til sambandsins í dag.
Um er að ræða síðari leik liðanna í úrslitum Suður-Amerísku Meistaradeildarinnar.
Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað eftir að stuðningsmenn River Plate réðust á liðsrútu Boca Juniors. Var táragasi meðal annars kastað inn í rútuna.
Leikmenn Boca voru ekki í góðu ásigkomulagi eftir árásina og var leiknum því frestað.
Boca Juniors sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þess efnis að þeir vilji að leikurinn verði ekki spilaður fyrr en að öryggi leikmanna verði tryggt.
Ekki er búið að staðfesta nýjan leiktíma en Fótbolti.net heldur áfram að fylgjast með framvindu mála.
Sjá einnig:
Boca sendir frá sér yfirlýsingu - Vilja frestun
Leik River Plate og Boca Juniors frestað (Staðfest)

Comunicado de prensa | El Club Atlético Boca Juniors realizó este domingo una presentación formal ante la Conmebol para solicitar que la final de la Copa Libertadores se juegue en condiciones de igualdad, tal como se firmó ayer en el Estadio Monumental. 👉 https://t.co/Ym4UTeFlxy pic.twitter.com/s2KGK86zPi
— Boca Jrs. Oficial 🏆🏆 (@BocaJrsOficial) November 25, 2018