25.11.18 - 14:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mick McCarthy tekur aftur við Írlandi (Staðfest)

Mick McCarthy.

Mynd: Getty Images

Mick McCarthy.

Mynd: Getty Images
Mick McCarthy hefur skrifað undir tveggja ára samning við írska knattspyrnusambandið. Hann mun taka við sem landsliðsþjálfari öðru sinni á sínum þjálfaraferli.
McCarthy stýrði Írlandi frá 1996 til 2002. Hann mun taka við Írlandi af Martin O'Neill og vini sínum Roy Keane. Hann á að rétta úr kútnum eftir mjög slakt gengi að undanförnu. Næst á dagskrá er undankeppni EM alls staðar.
McCarthy kom Írlandi á HM 2002 en frægt var þegar hann lenti í rifrildi við stjörnuleikmann liðsins, áðurnefndan Roy Keane. McCarthy sendi Keane heim af mótinu en Írland komst samt í 16-liða úrslit þar sem Spánverjar voru þó of stór biti.
Blaðamaður Independent kallaði eftir því að fá Heimi Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands, í starfið en varð ekki að ósk sinni.
Terry Connor, fyrrum stjóri Wolves, og Robbie Keane, fyrrum sóknarmaður Tottenham og Liverpool, munu aðstoða McCarthy.
Stephen Kenny, sem stýrt hefur Dundalk í Írlandi, tekur við U21 landsliðinu og mun svo taka við A-landsliðinu af McCarthy árið 2020.

CONFIRMED | The FAI are delighted to announce that Mick McCarthy is the new Ireland Manager with Stephen Kenny with taking over as U21 Manager.
— FAIreland ⚽️🇮🇪 (@FAIreland) November 25, 2018
Full story: https://t.co/Jwxe1142ow #COYBIG pic.twitter.com/aQdZub628Q