Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   sun 25. nóvember 2018 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fékk annað gula fyrir að dýfa sér
Mynd: Getty Images
James Maddison, leikmaður Leicester, fékk að líta rauða spjaldið þegar Leicester mætti Brighton í gær.

Maddison fékk að líta sitt annað gula spjald á 28. mínútu fyrir leikaraskap.

Það hefur stundum gerst að dómari sleppi því að gefa leikmanni annað gula þegar um leikaraskap er að ræða en það var ekki þannig í gær.

Chris Kavanagh, dómari leiksins, sýndi Maddison enga miskunn og sendi hann beinustu leið í sturtu.

Staðan á þessum tímapunkti var 1-0 fyrir Brighton en Leicester tókst að jafna manni færri og urðu lokatölur 1-1. Jamie Vardy skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu.

Smelltu hér til að sjá atvikið þegar Maddison var rekinn af velli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner