25.11.18 - 20:30
Arnar Helgi Magnússon
Þjálfari Boca: Ómögulegt fyrir okkur spila við þessar aðstæður

Barros og Tevez ræða málin í gærkvöldi.

Mynd: Getty Images

Barros og Tevez ræða málin í gærkvöldi.

Mynd: Getty Images
Guillermo Barros Schelotto, þjálfari Boca Juniors hefur nú tjáð sig eftir að Suður-Ameríska knattspyrnusambandið varð við beiðni Boca Juniors að fresta leiknum gegn River í annað skipti.
Upphaflega átti leikurinn að fara fram í gærkvöldi, honum var síðan frestað til dagsins í dag en knattspyrnusambandið í Suður-Ameríku hefur nú frestað leiknum en frekar.

Sjá einnig:
Boca sendir frá sér yfirlýsingu - Vilja frestun
Leik River Plate og Boca Juniors frestað (Staðfest)
Leik River Plate og Boca Juniors frestað í annað sinn
„Aðstæðurnar eru í rauninni jafn slæmar og þær voru í gær," sagði Barrios á fundi sem haldinn var eftir ákvörðunina.
„Við höfum ekkert náð að undirbúa okkur síðan í gær. Þetta er leikur sem við erum búnir að vera að undirbúa okkur fyrir í heilt ár og svo kemur þetta upp. Við getum ekki spilað við þessar aðstæður, það er ómögulegt."
„Ég og þjálfarateymið höfum reynt frá því í gærkvöldi að undirbúa liðið liðið andlega en það er algjörlega ómögulegt. Þeir ná ekki einbeitingunni."
Ekki hefur verið ákveðinn önnur tímasetning á leikinn.