Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. nóvember 2019 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Nice um áhuga Chelsea: Get spilað fyrir stórlið
Mynd: Getty Images
Youcef Atal, leikmaður Nice í frönsku deildinni, segist hafa hæfileikana til að spila með stórliði.

Atal, sem er 23 ára gamall Alsíringur, hefur heillað í frönsku deildinni með Nice en hann getur spilað sem hægri bakvörður og vængmaður.

Hann hefur spilað 11 leiki, skorað 1 mark og lagt upp tvö á þessu tímabili en hann hefur verið orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea.

„Það voru lið sem vildu fá mig síðasta sumar en það var of snemmt að fara þá. Ég er að einbeita mér að því að eiga gott tímabil með Nice," sagði Atal.

„Ég get spilað fyrir stórlið og það er markmiðið. Ég er að vinna að því og það er enginn leikmaður sem myndi segja við þig að hann myndi ekki vilja spila fyrir stórlið," sagði Atal í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner