25.11.26 - 09:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Borg æfir með Aftureldingu og Keflavík hefur áhuga

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Borg Guðjohnsen er samningslaus eftir að samningur hans við FH rann út. Hann kom fyrst í FH árið 2023, þá á láni frá Víkingi seinni hluta tímabilsins, og samdi í kjölfarið í Hafnarfirði.
Hann æfir þessa dagana með Aftureldingu og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Keflavík áhuga á því að fá hann í sínar raðir.
Tímabilið 2025 var sóknarmaðurinn stærstan hluta tímabilsins á láni hjá Vestra en var lengi frá vegna meiðsla.

Á liðnu tímabili kom Arnór, sem er fæddur árið 2000, við sögu í 17 deildarleikjum og tveimur bikarleikjum. Hann byrjaði fimm deildarleiki og lagði upp eitt mark.
Keflavík er í leit að kantmanni og framliggjandi miðjumanni sem eru stöður sem Arnór getur leyst.
Keflavík er í leit að kantmanni og framliggjandi miðjumanni sem eru stöður sem Arnór getur leyst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð