Fotbolti.net
25.11.26 - 21:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bruno skoraði skrautlegt mark - „Þekkir hverja þúfu á gamla heimavellinum"

Bruno skoraði skrautlegt mark - „Þekkir hverja þúfu á gamla heimavellinum"
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Man Utd var 1-0 undir gegn Sporting í hálfleik eftir að Luis Suarez kom portúgalska liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu.

Bruno Fernandes jafnaði metin eftir tveggja mínútna leik í seinni hálfleik með marki úr vítaspyrnu.
Hann kom síðan Man Utd yfir með skrautlegu marki tveimur mínútum síðar. Hann átti skot fyrir utan teiginn og boltinn skoppaði af þúfu yfir markvörðinn og í netið.

„Hann setti hann í þúfu, hann þekkir hverja þúfu á gamla heimavellinum," sagði Guðmundur Benediktsson, Gummi Ben, í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport.

Bruno Fernandes gekk til liðs við Man Utd frá Sporting árið 2020.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.