26.01.17 - 06:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Brad Guzan í MLS deildina (Staðfest)

Brad Guzan mun snúa heim til Bandaríkjanna í sumar

Mynd: Getty Images

Brad Guzan mun snúa heim til Bandaríkjanna í sumar

Mynd: Getty Images
Bandaríski markvörðurinn Brad Guzan mun ganga til liðs við Atlanta United en liðið leikur í MLS deildinni í Bandaríkjunum. Búið er að skrifa undir samninga en Guzan mun ganga til liðs við félagið næsta sumar.
Guzan leikur með Middlesbrough en hefur þurft að þola bekkjarsetu fyrir Victor Valdez.
Atlanta var stofnað fyrir aðeins tveimur árum og er þetta því hvalreki fyrir félagið en Guzan hefur leikið 53 landsleiki fyrir Bandaríkin.
Middlesbrough hefur staðfest félagaskiptin og hefur einnig sagt að Guzan verður áfram lykilmaður innan leikmannahópsins það sem eftir lifir tímabil.
Guzan lék áður með Aston Villa og Hull.