Fotbolti.net
26.01.17 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Eto\'o aftur í rússneska boltann (Staðfest)

Eto\'o aftur í rússneska boltann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kamerúnski framherjinn Samuel Eto\'o hefur samið við FC Amkar í rússnesku úrvalsdeildinni.

Hinn 35 ára gamli Eto\'o lék á sínum tíma með Barcelona og Inter en hann hefur verið á miklu flakki undanfarin ár.

Eto\'o lék síðast með Antalyaspor í Tyrklandi þar sem hann var meðal annars spilandi þjálfari um tíma.
Eto\'o er nú mættur aftur í rússneska boltann en hann spilaði með Anzhi Makhachkala þar í landi frá 2011 til 2013.

Síðan þá hefur Eto\'o verið á mála hjá Chelsea, Everton, Sampdoria og nú síðast Antalyaspor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.