26.01.17 - 17:40
Elvar Geir Magnússon
Hrvoje Tokic í Breiðablik (Staðfest)

Tokic í leik með Ólsurum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tokic í leik með Ólsurum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatinn Hrvoje Tokic hefur gengið til liðs við Breiðablik en þetta er tilkynnt á vefsíðunni blikar.is.
Þessi 27 ára gamli sóknarmaður lék undafarin tvo keppnistímabil með Víkingi frá Ólafsvík. Hann sló í gegn með Ólafsvíkingum í 1. deildinni árið 2015. Hann gekk til liðs við liðið um mitt sumar og skoraði þá hvorki fleiri né færri en 12 mörk í 8 leikjum.
Í fyrra spilaði hann alla leiki Víkingana í Pepsi-deildinni og skoraði 9 mörk. Þar af komu 8 mörk í fyrri helmingnum en hann var valinn í úrvalslið umferða 1-11.
Hrvoje Tokic er 190 cm á hæð og á að baki 9 landsleiki með U-19 ára landsliði Króatíu og skoraði 5 mörk í þeim leikjum.
„Blikar fagna komu Tokic enda ljóst að hann kemur með nýja vídd inn í léttleikandi Blikaliðið,\" segir á blikar.is. Breiðablik hafnaði í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra. Liðið var lengi í baráttu um Evrópusæti en gaf eftir á lokasprettinum.
Komnir:
Hrvoje Tokic frá Víkingi Ó.
Martin Lund Pedersen frá Fjölni
Farnir:
Alfons Sampsted til Norrköping
Aron Snær Friðriksson í Fylki
Arnór Sveinn Aðalsteinsson í KR
Árni Vilhjálmsson í Jönköping (Var á láni)
Daniel Bamberg
Elfar Freyr Helgason til Horsens (Á láni)
Ellert Hreinsson
Jonathan Glenn
Kári Ársælsson hættur

Króatinn Hrvoje Tokic hefur gengið til liðs við Breiðablik #Fotboltinethttps://t.co/SHdSVJWCBq pic.twitter.com/2SJJKUkkd2
— Blikar.is (@blikar_is) January 26, 2017
Heimild: Blikar.is