Fotbolti.net
26.01.17 - 21:13
Ívan Guðjón Baldursson

Igor Taskovic spilar með Fjölni í sumar (Staðfest)

Igor Taskovic spilar með Fjölni í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fjölnir

Igor Taskovic mun leika með Fjölni í Pepsi-deildinni næsta sumar eftir að hafa verið lykilmaður í liði Víkings Reykjavík undanfarin þrjú ár.

Igor var fyrirliði Víkings í langan tíma en það var félagið sem ákvað að framlengja ekki samning hans eftir síðasta sumar.
Igor er 35 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður sem getur einnig spilað sem miðvörður og var valinn í úrvalslið Pepsi-deildarinnar árið 2014.

Igor er búinn að skrifa undir samning við Fjölni út tímabilið 2017, en Fjölnir endaði í 4. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra og Víkingur í 7. sæti.

Hér á myndinni má sjá Ágúst Gylfason þjálfara Fjölnis handsala samninginn við Igor fyrr í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.