26.01.17 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Subotic og Ramos yfirgefa Dortmund (Staðfest)

Subotic er kominn í Köln sem er í sjöunda sæti þýsku Bundesligunnar.

Mynd: Getty Images

Köln hefur fengið Neven Subotic á lánssamningi frá Borussia Dortmund út tímabilið. Subotic hefur strögglað með að fá leiktíma síðustu ár þar sem meiðsli hafa leikið hann grátt. Hann skaddaði liðbönd og átti í vandræðum með hnéð á sér.
Subotic er 28 ára og var næstum farinn til Middlesbrough á síðasta sumri en féll á læknisskoðun. Í kjölfarið þurfti hann að fara í aðgerð á rifbeini.
„Ég er hér með bros á vör og er spenntur fyrir nýrri áskorun,\" segir Subotic sem spilaði stórt hlutverk í meistaraliði Dortmund 2011 og 2012. Hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum.
Hann er miðvörður og hefur leikið 192 leiki með Dortmund í þýsku Bundesligunni. Hann kom til félagsins 19 ára gamall frá Mainz og er nú samningsbundinn til 2018.
Þá tilkynnti Dortmund í dag að sóknarmaðurinn Adrian Ramos myndi ganga í raðir Chongqing Lifan í Kína í sumar. Ramos hefur verið lánaður til Granada á Spáni út tímabilið en þar er hann liðsfélagi Sverris Inga Ingasonar. Granada berst fyrir lífi sínu í La Liga.
Ramos náði aldrei að festa sæti sitt í byrjunarliði Dortmund en hann var fenginn frá Hertha Berlin þegar Robert Lewandowski var seldur.

📝 Welcome to #effzeh, @NSubotic4!
— 1. FC Cologne (@fckoeln_en) January 26, 2017
👉 https://t.co/tfNYbtrXoR pic.twitter.com/oyJy3XlJyg
✍️ Dortmund forward Adrián Ramos has joined Spanish side Granada on loan until the end of the season.#UCL pic.twitter.com/I8cFZP2T9L
— Champions League (@ChampionsLeague) January 26, 2017