26.01.17 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Terrance William í Gróttu (Staðfest)

Terrance William Dieterich í leik með Haukum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Grótta hefur fengið markvörðinn Terrance William Dieterich í sínar raðir fyrir keppni í Inkasso-deildinni í sumar.
William hefur undanfarin tvö tímabil leikið með Haukum.
William var aðalmarkvörður Hauka árið 2015 en í fyrrasumar spilaði hann níu leiki með liðinu á meðan Magnús Kristófer Anderson lék þrettán leiki.
Markvörðurinn Trausti Sigurbjörnsson kom til Hauka í haust og á sama tíma varð ljóst að William yrði ekki áfram hjá Haukum.
Hinn 29 ára gamli William spilaði einnig með Tindastóli síðari hluta sumars 2014.
William er annar leikmaðurinn sem Grótta fær í sínar raðir í vikunni en varnarmaðurinn Andri Þór Magnússon kom til félagsins frá Fjarðabyggð í fyrradag.