26.01.17 - 18:19
Elvar Geir Magnússon
Watford hefur fengið Niang frá AC Milan (Staðfest)

Niang fær treyju númer 21 hjá Watford.

Mynd: Getty Images

Niang fær treyju númer 21 hjá Watford.

Mynd: Getty Images
Watford hefur fengið framherjann M\'Baye Niang á lánssamningi frá AC Milan út tímabilið. Watford á möguleika á að fá þennan 22 ára leikmann alfarið í sumar.
Niang getur einnig leikið á vængnum en hann var aðeins 16 ára þegar hann spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Caen í Frakklandi.
AC Milan var fljótt að krækja í þennan snögga og kraftmikla leikmann en þegar hann var 17 ára og 350 daga gamall varð hann næst yngsti markaskorari Milan í sögunni. Þá skoraði hann í bikarleik gegn Reggina í desember 2012.
Hann á 77 leiki að baki fyrir Milan og þá hefur hann leikið fyrir Montpellier og Genoa á lánssamningum.

M'Baye Niang joins on loan til the end of the season. #watfordfc have the option on a permanent move in the summer:https://t.co/PTgFJ9ISx6 pic.twitter.com/EHzOuptcBT
— Watford FC (@WatfordFC) January 26, 2017