Fotbolti.net
26.01.19 - 16:17
Brynjar Ingi Erluson

Arnþór Ari í HK (Staðfest)

Arnþór Ari Atlason er búinn að semja við HK

Arnþór Ari Atlason er búinn að semja við HK

Canon

Mynd: Heimasíða HK

Arnþór Ari Atlason skrifaði í dag undir samning við HK en hann gildir til næstu þriggja ára.
Arnþór er 25 ára gamall og er Þróttari að upplagi en auk þess hefur hann leikið fyrir Fram og Breiðablik.

Hann hefur spilað með Blikum síðustu fjögur árin en HK bauð í hann undir lok síðasta árs og samþykkti hann tilboðið.

Arnþór lék 18 leiki í Pepsi-deildinni síðasta sumar og þá fjóra í bikar en hann skoraði 13 mörk í 92 leikjum fyrir félagið í deild- og bikar.

Hann hefur nú gert þriggja ára samning við HK og spilar með þeim í Pepsi-deildinni í sumar.

HK-ingar eru stórhuga en þeir hafa framlengt við alla helstu lykilmenn og þá fengið leikmenn á borð við Emil Atlason, Kára Pétursson og Atla Arnarson.

Þá ætti Hafsteinn Briem að vera klár í slaginn fyrir tímabilið en hann missti af síðasta tímabili vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.