26.01.19 - 11:09
Brynjar Ingi Erluson
Portúgalskur miðjumaður í ÍBV (Staðfest)

Telmo Castanheira fer til ÍBV

Mynd: ÍBV

Telmo Castanheira fer til ÍBV

Mynd: ÍBV
ÍBV heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Pepsi-deild karla en portúgalski miðjumaðurinn Telmo Castanheira er kominn til félagsins frá Trofense.
Castanheira er 24 ára gamall og hefur leikið í 2. deildinni í Portúgal undanfarið en hann hefur gert 3 mörk í 14 leikjum fyrir Trofense á tímabilinu.
Hann er nú kominn til ÍBV og mun leika með liðinu næstu tvö tímabil en portúgalski þjálfarinn Pedro Hipolito þjálfar ÍBV eftir að hafa áður þjálfað Fram.
Castanheira er uppalinn í Porto en tókst ekki að finna sig þar og hefur leikið með fjölda liða í Portúgal á borð við Leixoes, Santa Clara og auðvitað Trofense.
Þetta er þriðji Portúgalinn sem Hipolito fær til ÍBV en hann fékk einnig Rafael Veloso og þá er Dieho Coelho î röðum félagsins en hann kom á síðasta ári.
ÍBV hafnaði í 6. sæti Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili og er stefnan sett hærra fyrir komandi tímabil.
Komnir:
Telmo Castanheira frá Frofense í Portúgal
Evariste Ngolok frá Aris Limassol á Kýpur
Felix Örn Friðriksson frá Vejle (Var á láni)
Guðmundur Magnússon frá Fram
Jonathan Glenn frá Fylki
Óskar Elías Zoega Óskarsson frá Þór
Rafael Veloso frá Valdres
Farnir:
Atli Arnarson í HK
Gunnar Heiðar Þorvaldsson hættur
Kaj Leó í Bartalssotvu í Val
Kassa Guy Gnabouyou til Grikklands
Yvan Yann Erichot
Samningslausir:
Frans Sigurðsson
Róbert Aron Eysteinsson