Fotbolti.net
26.01.20 - 23:10
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin úr bikarnum: Stórsigrar hjá Manchester-liðunum

Sjáðu mörkin úr bikarnum: Stórsigrar hjá Manchester-liðunum
Canon

Mynd: Getty Images

Þrír leikir fóru fram í enska bikarnum í dag þar sem þrjú stórlið voru að spila en Manchester City og Manchester United eru komin áfram í næstu umferð eftir stórsigra.
Manchester City vann Fulham 4-0. Gabriel Jesus skoraði meðal annars tvö mörk fyrir City.

Manchester United vann sinn stærsta sigur í um það bil níu ár er liðið vann Tranmere 6-0. Harry Maguire skoraði og lagði upp, þá komst Phil Jones og Jesse Lingard einnig á blað.

Shrewsbury Town og Liverpool gerðu þá dramatískt 2-2 jafntefli og þurfa að mætast aftur en hægt er að sjá það allra helsta úr leikjunum hér fyrir neðan.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.