Fotbolti.net
26.02.19 - 16:46
Elvar Geir Magnússon

Fékk lengsta bann í sögu enska boltans

Josh Yorwerth í treyju Crawley.

Josh Yorwerth í treyju Crawley.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Josh Yorwerth hefur fengið lengsta keppnisbann í sögu enska boltans eftir að hann neitaði að fara í lyfjapróf. Hann var dæmdur í fjögurra ára keppnisbann.

Yorwerth gekk í raðir Peterborough (í ensku C-deildinni) síðasta sumar en hefur þegar verið rekinn frá félaginu. Hann viðurkenndi að hafa tekið kókaín.

Yorwerth er fyrrum leikmaður U21-landsliðs Wales.
Þegar lyfjaeftirlitið ætlaði að taka sýni frá honum neitaði hann í þeirri trú að keppnisbannið yrði styttra en ef hann myndi falla á prófinu.

Hann hafði rangt fyrir sér þar og hefði reyndar notið nafnleyndar ef hann hefði tekið prófið.

Yorwerth kom upp úr akademíu Cardiff City en er fyrrum leikmaður Crawley og Ipswich.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.