26.02.19 - 20:36
Elvar Geir Magnússon
Gylfi þaggaði niður í baulinu - Aron klobbaði dómarann
Gylfi kominn yfir Eið sem markahæsti Íslendingurinn

Gylfi og Aron í baráttunni í leiknum í kvöld.

Mynd: Getty Images

Gylfi og Aron í baráttunni í leiknum í kvöld.

Mynd: Getty Images
Nú er í gangi Íslendingaslagur Cardiff og Everton í ensku úrvalsdeildinni. Staðan er 0-1 en markið skoraði Gylfi Þór Sigurðsson.
Smelltu hér til að sjá markið
Fyrr í leiknum bauluðu stuðningsmenn heimaliðsins á Gylfa en hann er fyrrum leikmaður Swansea, erkifjenda Cardiff.
Seamus Coleman lagði upp markið með fyrirgjöf frá hægri á 41. mínútu en nú er hálfleikur í leiknum. Fylgst er með í úrslitaþjónustu á forsíðu.
„Stuðningsmenn Cardiff sem bauluðu áðan eru skyndilega alveg hljóðir," segir í textalýsingu BBC frá leiknum.
Gylfi er kominn með 56 úrvalsdeildarmörk og er orðinn markahæstur Íslendinga í sögu deildarinnar. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði 55 mörk.

Aron Einar Gunnarsson, sem er í byrjunarliði Cardiff, kemur einnig við sögu í umræddri textalýsingu en sagt er að hann hafi klobbað dómara leiksins þegar hann sendi boltann á Junior Hoilett.
34 - Everton’s Gylfi Sigurdsson has been involved in more Premier League goals in games played in Wales than any other player (13 goals, 21 assists in 68 appearances). Dragon. pic.twitter.com/J9cKDkNxBV
— OptaJoe (@OptaJoe) February 26, 2019

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images