26.02.19 - 08:35
Magnús Már Einarsson
Klopp hellti sér yfir Henderson

Jurgen Klopp og Jordan Henderson.

Mynd: Getty Images

Romagnoli gæti verið á leið í enska boltann.

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp og Jordan Henderson.

Mynd: Getty Images

Ensku slúðurblöðin eru með alls konar kjaftasögur í dag. Skoðum þær!
Leicester ætlar að reyna að fá Brendan Rodgers stjóra Celtic, strax í stjórastólinn eftir brottrekstur Claude Puel á sunnudag. (Guardian)
Peter Stoger, fyrrum þjálfari Borussia Dortmund, gæti komið til greina hjá Leicester sem næsti stjóri. (Leicester Mercury)
Sean Dyche, stjóri Burnley, hefur blásið á sögusagnir um að hann sé að taka við Leicester. (Burnley Express)
Arsenal er í bílstjórasætinu í baráttunni um Aaron Wan-Bissaka (21) hægri bakvörð Crystal Palace. Arsenal er tilbúið að borga 40 milljónir punda til að tryggja sér þjónustu hans. (Sun)
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, öskraði á markvörðinn Kepa Arrizabalaga inni í klefa á Wembley eftir að Spánverjinn neitaði að koma af velli gegn Manchester City á sunnudaginn. (Goal)
Margir liðsfélagar Kepa eru reiðir út í hann eftir atvikið á sunnudaginn. (Express)
Manchester United, Chelsea og Juventus vilja fá Alessio Romagnoli (24) varnarmann og fyrirliða AC Milan í sinar raðir í sumar. (Manchester Evening News)
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, tók fyrirliðann Jordan Henderson (28) sérstaklega fyrir þegar hann lét leikmenn sína heyra það inni í klefa eftir markalausa jafnteflið gegn Manchester United um helgina. Klopp var ósáttur við frammistöðu Liverpool og sérstaklega ósáttur með Henderson sem neitaði að taka í hönd hans þegar hann var tekinn af velli. (Sun)
Andrea Radrizzani, eigandi Leeds, gæti neyðst til að selja félagið ef það fer ekki upp í ensku úrvalsdeildina í vor. Radrizzani á erfitt með að fjármagna annað ár í Championship deildinni. (Mail)
Chelsea ætlar að selja miðjumanninn Kasey Palmer (22) til Bristol City á fjórar milljónir punda þrátt fyrir að hann eigi engan leik að baki með aðalliði félagsins. (Sun)
Watford ætlar að leita að leikmönnum í Brasilíu í sumar. Framherjinn Gustavo (24) hjá Corinthians, Lincoln (17) framherji Flamengo og framherjinn Martinellibeing (17) hjá Ituano eru á óskalistanum. (Watford Observer)

Romagnoli gæti verið á leið í enska boltann.

Mynd: Getty Images
