Fotbolti.net
26.02.19 - 18:24
Elvar Geir Magnússon

Stjarnan lánar Björn Berg Bryde í HK (Staðfest)

Björn Berg ásamt Viktori Bjarka, aðstoðarþjálfara HK.

Björn Berg ásamt Viktori Bjarka, aðstoðarþjálfara HK.

Canon

Mynd: HK

Miðvörðurinn Björn Berg Bryde, sem lék með Grindavík á síðasta tímabili, hefur verið lánaður í nýliða HK í Pepsi Max-deildinni. Þetta staðfestir Kópavogsfélagið á Facebook-síðu sinni.

Björn er 27 ára gamall og uppalinn hjá FH. Hann hefur leikið alla sína meistaraflokksleiki með Grindavík frá árinu 2012 eða 126 talsins í deild og bikar þar af 51 í efstu deild.

Björn gekk í raðir Stjörnunnar síðastliðið haust sem nú lánar hann til HK en hann hafði gert þriggja ára samning í Garðabænum.
Hjá HK leysir hann stöðu fyrirliðans Guðmundar Júlíussonar sem missir af tímabilinu vegna meiðsla.

Stjarnan var fyrir með Daníel Laxdal og Brynjar Gauta Guðjónsson í miðvarðastöðunum og eftir að Björn Berg kom fengu þeir líka Martin Rauschenberg frá Brommapojkarna.

Stjarnan lánar Björn Berg Bryde í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.