Fotbolti.net
26.02.19 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Króatískur miðvörður í Njarðvík (Staðfest)

Króatískur miðvörður í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Toni Tipuric er genginn til liðs við Njarðvík. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Toni er miðvörður og er ætlað að styrkja vörn Njarðvíkurliðsins. Toni er 24 ára Króati. Hann á yfir 100 leiki í efstu- og næst efstu deildum í Bosníu og Hersegóvínu og Króatíu.

Hann er alinn upp hjá HSK Zrinjski Mostar sem er ríkjandi meistari í Bosníu og Hersegóvínu.

Toni gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík gegn KR í Lengjubikarnum þann 28. febrúar.

Njarðvík leikur í Inkasso-deildinni.

Heimild: UMFN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.