Fotbolti.net
26.02.20 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Willian gæti farið í sumar - Chelsea vill ekki bjóða þrjú ár

Willian gæti farið í sumar - Chelsea vill ekki bjóða þrjú ár
Canon

Mynd: Getty Images

Willian gæti farið frá Chelsea þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar en hann hefur verið orðaður meðal annars við Barcelona og Tottenham.

Þessi 31 árs gamli Brasilíumaður hefur verið í viðræðum um nýjan samning við Chelsea en félagið vill ekki bjóða honum þriggja ára samning eins og hann vill.
„Chelsea bauð mér tveggja ára samning og þeir ætla ekki að breyta því sem þeir buðu. Ég sagði að ég vildi þrjú ár. Staðan er erfið út af þessu og ég veit ekki hvort það verði mögulegt (að semja)," sagði Willian.

„Markmið mitt er að halda áfram að leggja mig fram og einbeita mér út tímabilið til að Chelsea geti unnið leiki. Ég er einbeittur á það sem eftir er af tímabilinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.