Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 26. mars 2020 15:08
Magnús Már Einarsson
Everton leggur fram tilboð í Magalhaes
Mynd: Getty Images
Everton er eitt fjögurra félaga sem hefur lagt fram tilboð í Gabriel Magalhaes, varnarmann Lille.

Annað ónefnt félag á Englandi og tvö ítölsk félög hafa einnig lagt fram tilboð í þennan 22 ára gamla Brasilíumann. Arsenal og tottenham hafa verið orðuð við leikmanninn í vetur.

Lille hefur samþykkt tilboðin fjögur en þau eru talin hljóða upp á 30 milljónir punda.

Mögulega verður gengið frá samningum á næstu tíu dögum en Magalhaes fer þá í nýtt félag í sumar.

Magalhaes hefur slegið í gegn í Frakklandi síðan hann kom til Lille á 1,5 milljón punda árið 2017.
Athugasemdir
banner
banner