Rodri, miðjumaður Manchester City og besti leikmaður heims árið 2024, hefur tjáð sig um möguleg félagaskipti til Real Madrid. Spánverjinn á rúmt ár eftir af samningi sínum við City og hefur verið orðaður við endurkomu til Spánar.
„Þú hafnar ekki bara bestu félögum í heimi," sagði Rodri í útvarpsviðtali við Onda Cero á Spáni. Rodri er 29 ára og kom til City frá Atletico Madrid árið 2019.
„Þú hafnar ekki bara bestu félögum í heimi," sagði Rodri í útvarpsviðtali við Onda Cero á Spáni. Rodri er 29 ára og kom til City frá Atletico Madrid árið 2019.
Rodri vill ekki að þessi orð sín séu túlkuð þannig að hann sé á förum frá City, það sé möguleiki á því að ahnn verði áfram og viðræður framundan um nýjan samning.
„Ég á ár eftir af samningi mínum; tíminn mun koma þar sem við setjumst niður og ræðum málin."
Ef Rodri skrifar ekki undir fyrir næsta tímabil gæti City reynt að selja hann til að fá eitthvað fyrir hann. Samkvæmt heimildum Sky Sports vill City framlengja við Rodri. Sky Sports segir að City ætli ekki að tjá sig um ummæli Rodri að svo stöddu.
Real ætlar að fá inn miðjumann og hefur félagið einnig verið orðað við þá Vitinha (PSG) og Enzo Fernandez (Chelsea).
Athugasemdir



