Heimild: Fotbollskanalen
Arnór Sigurðsson hefur fengið mikla gagnrýni í sænskum fjölmiðlum eftir slaka byrjun á tímabilinu með Malmö.
Malmö er með sjö stig eftir fjórar umferðir en Arnór hefur byrjað á bekknum í síðustu þremur leikjum og spilað síðasta korterið.
Malmö er með sjö stig eftir fjórar umferðir en Arnór hefur byrjað á bekknum í síðustu þremur leikjum og spilað síðasta korterið.
Hann var í byrjunarliðinu í fyrstu umferð í jafntefli gegn Örgryte en var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik. Hann hefur ekki komið að marki til þessa.
„Ég held áfram að leggja hart að mér. Maður fer í gegnum erfiða tíma í fótbolta. Það er svo spurning hvernig maður bregst við því, á ég að gefast upp? alls ekki. Ég elska fótbolta, maður verður að gera sitt besta á hverri einustu æfingu og í ölllum leikjum, samkeppni er góð," sagði Arnór.
„Maður fær gangrýni þegar maður er ekki upp á sitt besta. Maður má ekki hugsa of mikið um það. Maður verður að læra að hunsa það en á sama tíma er þetta sanngjörn gagnrýni. Ég mun leggja enn meira á mig, ekki bara út af því að ég hef verið gagnrýndur heldur út af því að ég hef ekki spilað eins og ég vil. Mér er alveg sama hvað er skrifað eða sagt um mig."




