Fotbolti.net
26.05.18 - 22:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Karius: Ég tapaði leiknum fyrir liðið mitt

Karius var niðurbrotinn eftir leikinn.

Karius var niðurbrotinn eftir leikinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Loris Karius var niðurbrotinn eftir tap Liverpool gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. „Ég tapaði leiknum fyrir liðið mitt,\" sagði Karius við Talksport að leik loknum.

Karius gerði tvö skelfileg mistök, í fyrsta marki Real og í þriðja markinu, mistök sem eiga ekki að sjást í Meistaraflokksfótbolta, hvað þá á þessu stigi, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

„Ég finn til með öllum, liðinu, félaginu, öllum. Mistök mín reyndust okkur dýrkeypt. Ef ég gæti farið til baka í tímann, þá myndi ég gera það,\" sagði þýski markvörðurinn.
„Ég veit að ég brást liðinu mínu í dag.\"

Það er spurning hvort Karius verði áfram hjá Liverpool á næstu leiktíð. Miðað við frammistöðu hans í kvöld verður Liverpool að finna sér annan markvörð fyrir næstu leiktíð.

Sjá einnig:
„Hann er ekki að fara að spila fleiri leiki fyrir Liverpool\"

Heimild: Talksport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.