Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   sun 26. maí 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Átta lið enn að berjast um sæti
Ítalska deildartímabilinu lýkur í kvöld þegar sex leikir fara af stað samtímis hjá liðum sem eru enn í hinum ýmsu baráttum.

Torino mætir Lazio í fyrsta leik dagsins þar sem liðin berjast um sjöunda sæti deildarinnar.

Sampdoria tekur svo á móti Ítalíumeisturum Juventus áður en alvaran tekur við.

Spútnik lið Atalanta getur tryggt sér Meistaradeildarsæti með sigri gegn Sassuolo. Milan þarf sigur gegn Spal til að eiga möguleika á topp fjórum og þá á Inter afar erfiðan leik við fallbaráttulið Empoli.

Inter þarf sigur til að tryggja sæti sitt í Meistaradeildinni á meðan Empoli berst fyrir lífi sínu á hinum endanum. Empoli er þó búið að vinna þrjá leiki í röð, gegn Fiorentina, Sampdoria og Torino.

Þá þarf Roma sigur gegn Parma til að reyna að taka 4. sætið af Inter.

Leikir dagsins:
13:00 Torino - Lazio (Stöð 2 Sport 3)
16:00 Sampdoria - Juventus (Stöð 2 Sport 3)
18:30 Atalanta - Sassuolo (Stöð 2 Sport 2)
18:30 SPAL - AC Milan (Stöð 2 Sport 3)
18:30 Inter - Empoli (Stöð 2 Sport 5)
18:30 Fiorentina - Genoa
18:30 AS Roma - Parma
18:30 Cagliari - Udinese
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner