Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 26. maí 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Hjammi velur draumaliðið sitt
Hjálmar Örn Jóhannsson.
Hjálmar Örn Jóhannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það styttist í Pepsi Max-deildina og grínistinn Hjálmar Örn Jóhannsson er með sitt lið klárt í Draumaliðsdeild Eyjabita fyrir sumarið.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Liðið hjá Hjamma:
Gulli Gull búinn að vera í Draumliðinu mínu alla tíð og það breytist ekkert í ár. Anton Ari: sagði einu sinni í viðtali að ég væri sá fyndnasti á Snapchat og eftir það varð hann strax hounurable member of the Johannsson clan.

Kári Árna: Hann er frændi konunnar og ég sá hann í Smáralind núna um helgina og hann er í rosalegu formi.

Damir: Geggjaður karakter og hrikalega skemmtilegur drengur! Sá fyrsti sem èg valdi.

Þórarinn Ingi: Setur ca 3-4 mörk á þessu seasoni, just wait.

Eiður Aron: Geggjaður defender og mikill fagmaður, er líka Sigurbjörnsson eins og Bjössi Sigurbjörns samt ekki skildir.

Helgi Valur: Hitti hann í krónunni um helgina, bar tvo poka léttilega og mun bera Fylkir alla leið í sumar!

Jóhann Árni: Frændi minn og minnir mig oft á mig þegar ég var ungur fótboltamaður. Geggjaður. One to watch.

Ólafur Ingi: Sendir mér reglulega snöpp þar sem hann leikur Bjarna Gröfumann. Elska hann. Tekur við af mèr þegar ég kveð.

Baldur Sigurðs: Fer fyrir okkur rauðhærðum, hef haldið uppá hann lengi. Duglegur og svona myndi ég líta út ef ég væri i formi og með hár.

Jón Gísli Ström: Mokarinn eins og ég kalla hann, verður vel heitur í sumar. 10 mörk liggja.

Patrick Pedersen: Danska skinkan, sá besti í deildinni. 15-20 mörk guarantee.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Draumaliðsdeildin - Gunni Birgis velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Böddi löpp velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Egill Ploder velur sitt lið
Draumaliðsdeildin - Aron Elís velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner