Fotbolti.net
26.06.18 - 10:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Nainggolan til Inter (Staðfest)

Nainggolan til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta komu Radja Nainggolan til félagsins eftir fjögur og hálft ár hjá Roma. Nainggolan er þrítugur miðjumaður sem er þekktur fyrir að vera bæði öflugur sóknarlega og varnarlega.
Kaupverðið er talið nema í kringum 20 milljónum punda. Roma fær auk þess tvo leikmenn frá Inter, bakvörðinn Davide Santon og miðjumanninn efnilega Nicoló Zaniolo, sem er 18 ára.

Samanlagt eru félagaskiptin rúmlega 33 milljón punda virði, samkvæmt útreikningum Roma.

Nainggolan, sem lagði landsliðsskóna á hilluna þegar hann var ekki valinn í belgíska hópinn fyrir HM, skrifaði undir fjögurra ára samning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.