26.06.18 - 13:43
Ívan Guðjón Baldursson
Pastore til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roma er búið að staðfesta kaupin á Javier Pastore, sem kemur frá Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain.
Pastore er sóknarsinnaður miðjumaður og hefur verið á mála hjá PSG undanfarin sjö ár. Hann er 29 ára gamall og á 29 landsleiki að baki fyrir Argentínu.
Roma borgar 25 milljónir evra fyrir Pastore, sem samsvarar 22 milljónum punda.
Pastore skrifar undir fimm ára samning við félagið og á að fylla í skarðið sem Radja Nainggolan skilur eftir með félagaskiptum sínum til Inter.
Pastore hefur reynslu úr ítalska boltanum en hann braust fram í sviðsljósið sem leikmaður Palermo fyrir rétt tæpum áratugi síðan.

The Shepherd has found his new flock. Welcome to #ASRoma, Javier Pastore!
— AS Roma English (@ASRomaEN) June 26, 2018
🐺🌳🐐 pic.twitter.com/oZMOO9jq8v