Fotbolti.net
26.06.18 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson

Stuart Armstrong til Southampton (Staðfest)

Stuart Armstrong til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Southampton er búið að staðfesta komu Stuart Armstrong til félagsins. Armstrong er 26 ára og hefur verið lykilmaður í liði skosku meistaranna Celtic undanfarin ár.
Armstrong er sóknarsinnaður miðjumaður og skrifar undir fjögurra ára samning við Southampton, sem rétt náði að halda sér í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Hjá Celtic hefur Armstrong verið að skora í fjórða hverjum deildarleik og á hann sex leiki að baki fyrir skoska A-landsliðið.

Kaupverðið er ekki gefið upp en talið er að enska félagið hafi greitt um 10 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.