Höskuldur verið að glíma við krónísk meiðsli - „Læra að vera aðeins skynsamari 32 ára“


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur verið inn og út úr hópnum hjá Kópavogsliðinu að undanförnu vegna meiðsla. Hann var síðast í byrjunarliði Breiðabliks gegn Val þann 17. maí.
Höskuldur ræddi við Fótbolta.net í gær um stöðuna á skrokknum eftir 4-1 tap liðsins gegn Víkingi á Kópavogsvelli.
Höskuldur ræddi við Fótbolta.net í gær um stöðuna á skrokknum eftir 4-1 tap liðsins gegn Víkingi á Kópavogsvelli.
„Ég er búinn að vera í pínu brasi. Það er búið að vera smá vesen á baki og hálsi hjá mér. Það er búið að vera pínu erfitt að hrista það af sér. Það er langt síðan maður var að glíma við krónísk meiðsli í lengri tíma. Það er eitthvað sem ég og sjúkraþjálfarateymið þurfum áfram að vinna í og koma mér í betra stand,“ sagði Höskuldur og segir meiðslin hafa plagað sig í þó nokkurn tíma.
„Maður hefur aðeins verið að þrjóskast og þjösnast á þessu. Ég held að maður þurfi loksins að læra að vera aðeins skynsamari 32 ára,“ sagði Höskuldur að lokum.
„Maður hefur aðeins verið að þrjóskast og þjösnast á þessu. Ég held að maður þurfi loksins að læra að vera aðeins skynsamari 32 ára,“ sagði Höskuldur að lokum.



