Fotbolti.net
26.06.26 - 10:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Newcastle hafnaði munnlegu tilboði Arsenal

Newcastle hafnaði munnlegu tilboði Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistararnir í Arsenal lögðu fram munnlegt tilboð í brasilíska landsliðsmanninn Bruno Guimaraes en Newcastle hafnaði tilboðinu. David Ornstein hjá The Athletic greinir frá.

Miðjumaðurinn er lykilmaður hjá Newcastle, hann er fyrirliði liðsins og er ekki til sölu.

Hann er 28 ára og segir Ornstein að tilboð Arsenal hafi ekki náð 60 milljónum punda.
Guimaraes er byrjunarliðsmaður í brasilíska landsliðinu sem er á leið í 32-liða úrslit HM.

Mikilvægi Guimaraes lýsir sér í því að sigurhlutfall liðsins þegar hann er ekki með í úrvalsdeildinni er einungis 12,5% frá komu hans í janúar 2022 og sigurhlutfallið er 52,3% með hann í liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.