Fotbolti.net
26.06.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Metin halda áfram að falla á HM

Auston Trusty skoraði sögulegt mark

Auston Trusty skoraði sögulegt mark

Canon

Mynd: EPA

Enn eitt metið var sett á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í nótt.
Auston Trusty, miðvörður Bandaríkjanna, skrifaði sig í sögubækurnar þegar hann skoraði markið sem sló markamet heimsmeistaramótsins gegn Tyrkjum.

Markið var það 173. á mótinu og aldrei áður hafa fleiri mörk verið skoruð á einu heimsmeistaramóti frá því keppnin var fyrst haldin árið 1930.

Það hefur verið sannkölluð markaveisla á mótinu og metið verður væntanlega bætt enn frekar, enda riðlakeppninni ekki einu sinni lokið og nóg eftir af mótinu.

Áhorfendametið féll einnig í gærkvöldi en meira en 3,6 milljónir manna hafa nú mætt á leikina á HM. Fyrra metið var sett á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum árið 1994.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.