Fotbolti.net
26.06.26 - 12:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tók síðasta giggið í bili - „Gleður mig að geta styrkt Ingvar og hans fjölskyldu"

Auglýsing
Tók síðasta giggið í bili - „Gleður mig að geta styrkt Ingvar og hans fjölskyldu"
Canon

Mynd: Aðsend

Landsliðsmaðurinn Logi Tómasson tróð upp í Víkingsheimilinu fyrir rúmri viku síðan og voru það síðustu tónleikar Luigi í bili.

Tónleikarnir voru í boði Thule og Coca Cola og var um styrktartónleika fyrir Ingvar Jónsson að ræða. Ingvar berst við krabbamein og vildi Logi aðstoða hann og fjölskyldu hans á erfiðum tímum. Logi og Ingvar léku saman hjá Víkingi á árunum 2020-2023 og unnu fimm stóra titla saman.

Logi ræddi við Fótbolta.net í vikunni um tónleikana og ýmislegt annað.
„Það gekk bara mjög vel, ógeðslega gaman að sjá svona mikið af fólki koma á tónleikana hjá manni. Þetta var svona mín kveðjustund í tónlist á Íslandi í bili og mér fannst ég bara gera það ágætlega. Það var mikið af fólki sem mætti og var skemmtilegt."

„Ákvörðunin kemur alfarið frá mér, ég er svolítið búinn að stýra jafnvæginu á milli (fótboltans og tónlistarinnar), en ég finn svona að hugurinn leitar alltaf í enn meiri einbeitingu á fótboltann, þó ég sé alltaf 'all-in' í boltanum. Mig langar að einbeita mér bara að boltanum og svo þegar ferlinum er lokið get ég komið heim og gert fleiri hittara. Þá get ég kannski haldið fleiri tónleika, við sjáum til."

„Söfnunin gekk vel, ég á ennþá eftir að sjá allar lokatölurnar, en ég stefni á að geta gefið honum ágætisupphæð. Það gleður mig að geta styrkt Ingvar og hans fjölskyldu."


Er engin tómatilfinning að það verður ekki áframhald á tónlistinni núna á næstunni?

„Nei, ég hef nóg að gera. Ég er alltaf eitthvað að brasa og finn mér alltaf eitthvað skemmtilegt að gera. Það er næg áskorun fyrir skrokkinn og hausinn að spila fótbolta í efstu deild í Tyrklandi. Ég er spenntur að halda því áfram og taka ennþá fleiri skref í fótboltanum," segir Logi.
Logi og Ingvar.

Logi og Ingvar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tók síðasta giggið í bili - „Gleður mig að geta styrkt Ingvar og hans fjölskyldu"
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.