Fotbolti.net
26.07.19 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Dean Henderson og Ben Osborn í Sheffield United (Staðfest)

Dean Henderson og Ben Osborn í Sheffield United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur keypt miðjumanninn Ben Osborn frá Nottingham Forest. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé á bilinu 3-3,5 milljónir punda.
„Hann hefur marga eiginleika sem hjálpa okkur fram á við," sagði Chris Wilder stjóri Sheffield United.

Sheffield United hefur einnig fengið markvörðinn Dean Henderson aftur á láni frá Manchester United.

Henderson framlengdi samning sinn við United til ársins 2022 áður en hann gekk frá lánssamningi en hann var líka í láni hjá Sheffield United þegar liðið komst upp úr Championship deildinni í vor.

Nýliðar Sheffield United hafa nú fengið sjö leikmenn í sínar raðir í sumar en áður höfðu Lys Mousset, Luke Freeman, Phil Jagielka, Callum Robinson og Ravel Morrison komið til félagsins.
Dean Henderson

Dean Henderson

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.