Fotbolti.net
26.07.19 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kluivert kominn aftur til Barcelona (Staðfest)

Kluivert kominn aftur til Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Patrick Kluivert er mættur aftur til Barcelona. Þessi fyrrum sóknarmaður félagsins er tekinn til starfa hjá La Masia, akademíu félagsins.
Hinn 43 ára gamli Kluivert skrifaði undir tveggja ára samning við Barcelona.

Hann var rekinn sem aðstoðarþjálfari Kamerún eftir Afríkukeppnina í sumar. Kamerún olli miklum vonbrigðum í keppninni og féll úr leik í 16-liða úrslitunum.

Sem leikmaður skoraði hann 145 mörk í 308 leikjum hjá Barcelona. Hann vann spænsku úrvalsdeildina einu sinni.

Í viðtali við heimasíðu Barcelona sagðist hann vera ánægður með það að vera „kominn heim".
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.