26.07.19 - 13:30
Arnar Daði Arnarsson
Matthías Örn í GG (Staðfest)

Matthías við undirskriftina.

Mynd: GG

Matthías við undirskriftina.

Mynd: GG
Varnar og miðjumaðurinn, Matthías Örn Friðriksson hefur gengið í raðir GG í 4. deildinni en hann hefur skrifað undir félagaskipti við félagið.
Matthías gengur í raðir GG frá Grindavík en hann lék með Grindavík í Pepsi-deildinni síðast, síðasta sumar. Hann lagði takkaskóna á hilluna eftir síðasta tímabil en nú hefur hann ákveðið að taka slaginn með GG í 4. deildinni þar sem liðið er á góðri siglingu.

Matthías lék með Grindavík frá árunum 2010 til 2018 en hann lék til að mynda sextán leiki með liðinu síðasta tímabil. Hann hefur undanfarið einbeitt sér að pílukasti en hann er einn af bestu pílukösturum landsins.
„Við misstum Orra Frey Hjaltalín í vinnuslysi og það kom ekkert annað til greina en að finna mann í hans stað fyrir úrslitakeppnina. Hann kemur til með að styrkja okkur helling og leiðbeina ungu leikmönnunum," sagði Ivan Jugovic spilandi þjálfari GG.
GG er á toppi C-riðils í 4. deildinni með 28 stig eftir tíu leiki. Liðið hefur unnið alla leiki sína í C-riðlinum fyrir utan jafntefli gegn Berserkjum. GG þarf aðeins eitt stig í viðbót til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni 4. deildarinnar.
Liðið mætir Herði Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 í Grindavík. Það er spurning hvort Matthías leiki sinn fyrsta leik með félaginu í þeim leik.