26.07.19 - 12:00
Arnar Daði Arnarsson
Ólafur Aron og Louis Wardle í Magna (Staðfest)

Louis Wardle við undirritunina.

Mynd: Magni

Louis Wardle við undirritunina.

Mynd: Magni
Magni Grenivík hefur fengið liðsstyrk fyrir loka átökin í Inkasso-deildinni en Ólafur Aron Pétursson og Louis Wardle hafa gengið til liðs við félagið.
Ólafur Aron er miðjumaður sem kemur á láni frá KA út tímabilið. Ólafur Aron þekkir til á Grenivík því hann lék einnig með Magna á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.

Hinn 24 ára gamli Ólafur Aron hefur spilað þrjá leiki með KA í Pepsi Max-deildinni í sumar og skorað eitt mark, gegn Stjörnunni.
Louis Wardle er tvítugur varnarmaður sem hefur leikið með U23 ára liði Barnsley. Á síðasta tímabili var hann einnig á láni hjá Curzon Ashton í ensku utandeildinni.
Báðir verða þeir löglegir þegar Magni mætir toppliði Fjölnis í Inkasso-deildinni á morgun. Magni er í botnsæti deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.

Ólafur Aron við undirskriftina.

Mynd: Magni