26.07.19 - 15:26
Arnar Daði Arnarsson
Þórður Þorsteinn í FH (Staðfest)

Þórður Þorsteinn er genginn í raðir FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þorsteinn er genginn í raðir FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur samið við Þórð Þorsteinn Þórðarson út keppnistímabilið 2020. Þetta kemur fram á Facebook síðu FH nú rétt í þessu.
Þórður er 24 ára og kemur til FH frá ÍA. Hann hætti hjá ÍA fyrr í vikunni en nokkur félög í Pepsi Max-deildinni höfðu áhuga að fá hann til sín. Nú er hinsvegar ljóst að hann leikur með FH út tímabilið og gott betur en það.
Samtals hefur Þórður skorað átta mörk í 67 leikjum í Pepsi-deildinni á ferlinum. Hann kom við sögu í fjórum leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Þórður Þorsteinn er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir FH á tveimur dögum því gær fengu FH-ingar, Danann Morten Beck frá Danmörku.
FH er í 6. sæti deildarinnar með 19 stig eftir þrettán umferðir. FH er einnig í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þar sem liðið mætir KR seinna í ágúst mánuði.
FH fer á Akureyri á sunnudaginn og mætir þar KA í 14. umferð Pepsi Max-deildarinnar.