Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 26. júlí 2021 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd að taka þjálfarann frá Gunnhildi Yrsu
Marc Skinner.
Marc Skinner.
Mynd: Getty Images
Manchester United er loksins að ráða nýjan þjálfara fyrir kvennalið sitt.

Ráðningarferlið hefur tekið sinn tíma. Casey Stoney hætti sem þjálfari liðsins fyrir tveimur og hálfum mánuði síðan. Leikmenn Man Utd eru sagðir ósáttir með það hversu lengi ferlið hefur tekið.

Nýi þjálfarinn er víst Marc Skinner. Hann er hættur sem þjálfari Orlando Pride í Bandaríkjunum og er samkvæmt Sky Sports búinn að samþykkja að taka við Man Utd.

Hjá Orlando þjálfaði hann íslensku landsliðskonuna Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur.

Skinner er 38 ára gamall Englendingur. Hann stýrði Birmingham City frá 2016 til 2019 en þá tók hann við Orlando í Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner