26.08.19 - 13:35
Magnús Már Einarsson
Atli Barkarson til Fredrikstad (Staðfest)

Atli Barkarson eftir leik með Völsungi árið 2016.

Mynd: Heimasíða Völsungs

Vinstri bakvörðurinn Atli Barkarson hefur gert samning við Fredrikstad í norsku C-deildinni en samningurinn gildir út þetta ár.
Hinn 18 ára Atli kemur til Fredrikstad frá Norwich en hann hefur leikið með unglingaliðunum hjá enska félaginu undanfarin tvö ár eftir að hafa áður stigið sín fyrstu skref í meistaraflokki með uppeldisfélaginu Völsungi.
Fredrikstad var lengi vel í norsku úrvalsdeildinni en liðið féll niður í C-deild fyrir tveimur árum eftir að hafa verið í fjárhagsvandræðum og fallið úr úrvalsdeildinni árið 2012.

Fredrikstad er núna í 2. sæti í sínum riðli í C-deildinni og í harðri baráttu um að komast upp í B-deildina á nýjan leik.
Atli æfði með Fredrikstad í síðustu viku og samdi í kjölfarið við félagið út árið. Á vef Fredrikstad segir að möguleiki sé á að framlengja samninginn eftir tímabilið.
„Þetta er stórt félag og nánast eins og sofandi risi sem er á uppleið. Eftir tímann hjá Norwich vildi ég finna lið þar sem ég gæti spilað í meistaraflokki," sagði Atli.
Atli á 24 leiki að baki með U19, U18, U17 og U16 ára landsliðum Íslands.