Fotbolti.net
26.08.19 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Bas Dost til Frankfurt (Staðfest)

Bas Dost til Frankfurt (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Frankfurt hefur keypt hollenska framherjann Bas Dost frá Sporting Lisabon í Portúgal á sjö milljónir evra.

Hinn þrítugi Dost hefur skorað 81 mark í 103 leikjum með Sporting Lisabon undanfarin ár.
Hann á að fylla skarð framherjanna Luka Jovic og Sebastien Haller hjá Frankfurt en þeir fóru til Real Madrid og West Ham í sumar.

Dost þekkir til í þýsku úrvalsdeildinni því hann lék með Wolfsburg í fjögur ár áður en hann fór til Sporting.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.