Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. september 2019 17:18
Elvar Geir Magnússon
Krefjast þess að blaðamaður Morgunblaðsins biðjist afsökunar
Bjarni Helgason tekur viðtal.
Bjarni Helgason tekur viðtal.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Breiðablik og Valur gera athugasemdir við skrif Bjarna Helgasonar, blaðamanns Morgunblaðsins, í pistli sem birtist í morgun. Sagt er að þau séu litin alvarlegum augum.

Í pistlinum segir Bjarni að það hafi verið í umræðunni að í keppnisferðum yngri landsliða kvenna sé markvisst reynt að selja ungum leikmönnum það að möguleikar þeirra að spila með A-landsliðinu aukist til muna ef þeir skrifa undir hjá Breiðabliki eða Val.

Bjarni segist vonast til að ungir leikmenn hætti að láta glepjast af gylliboðum og haldi kyrru fyrir hjá uppeldisfélögum sínum.

Hér má sjá yfirlýsingu Breiðabliks og Vals vegna skrifa Bjarna:

Athugasemdir Breiðabliks og Vals við þankagang blaðamanns Morgunblaðsins
Vegna fullyrðinga Bjarna Helgasonar blaðamanns í bakverði Morgunblaðsins, fimmtudaginn 26. september, vilja knattspyrnudeildir Breiðabliks og Vals óska svara við eftirfarandi: Hvaða dæmi um “gylliboð” hefur blaðamaður Mbl fyrir því að leikmenn hafi fengið í ferð með yngri landsliðum Íslands?

Getur blaðamaður Morgunblaðsins bent á aðila tengda Breiðabliki eða Val sem hafa “markvisst reynt að selja ungum leikmönnum” slíkt í ferðum á vegum KSÍ? Knattspyrnustjórnir Breiðabliks og Vals líta þessar ásakanir blaðamanns mjög alvarlegum augum enda úr lausu lofti gripnar og eiga við engin rök að styðjast.

Þess er krafist að blaðamaður biðjist afsökunar á fullyrðingum sínum.

Virðingarfyllst,
Stjórnir knattspyrnudeildar Breiðabliks og Vals

Athugasemdir
banner
banner