Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 26. september 2019 16:45
Magnús Már Einarsson
Veselin Chilingirov tekur við Sindra (Staðfest)
Mynd: Sindri
Knattspyrnudeild Sindra hefur ráðið Veselin Chilingirov sem þjálfara meistaraflokks kvenna og yngri flokka.

Vesko, eins og hann er kallaður, gerir þriggja ára samning við Sindra.

Sindri endaði í 3. sæti í 2. deild kvenna í sumar og var þremur stigum frá því að fara upp um deild.

Vesko kemur frá Búlgaríu en hann hefur verið að þjálfa hjá Leikni
Reykjavík síðustu tvö ár þar sem hann þjálfaði síðast 2 og 3. flokk karla.

Á myndinni má sjá Veselin eftir undirskriftina með Jónu Benný Kristjánsdóttir gjaldkera deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner